Velkomin(n) á síðuna mína :)

bloggið Maríu Drafnar...

23.05.2007 09:10:40 / Maria

nýjir tímar.. ný síða:D

jæja þá er ég búin að ákveða að færa mig um síðu..

fór yfir á www.123.is/mariad og var að setja helling af myndum þar inn og svona, endilega skoðið:D Þessi hérna ætlar í smá pásu..

www.123.is/mariad

Kveða og Þakka fyrir þið sem hafið verið að lesa bloggin mín og þið sem hafið verið dugleg að commenta;) haldiði bara áfram að vera dugleg á nýju síðunni :)

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.05.2007 11:39:56 / Maria

Eurovision :)

Þá er það undankeppnin í eurovision í kvöld:) og ég verð reyndar að passa hjá annari fjölsk og það fyrsta sem ég spurði var já ef ég get horft á Eurovision hjá þér:)
Svo er það Aðalkeppnin á Laugardaginn ég er einhvern veginn alveg viss að við komust inn í kvöld, hann hefur ábbla svo marga á bak við sig, búinn að vera í þessum málum í mörg ár.. en það glataðasta er að við íslendingarnir getum ekki Kosið héðan nema fara yfir landamærin því lúx er ekki að keppa í ár, sem er gott þeir eru búinir að vinna þetta allvegana 5x :)

Talvan mín er bara í heimsókn á Íslandi núna, ákvað að senda Tölvuna mína bara alltof dýrt fyrir mig að koma, þannig að Talvan mín fer í ammli til múttu á laugardaginn, og hún ætlaði að gefa henni eins og 1 ammliskort með:) hehe kannksi ekki alveg En hún Sigga fór í heimsókn til íslands og vildi svo til að hun er að fara á krókinn, þannig að Mundi ætlaði að kíkja á tölvuna mína:D og Sigga ætlaði að taka tjútt á barnum fyrir mig:)

Þoli ekki þegar maður er búin að ákveða svo mikið hvað maður ætlar að blogga um svo man maður ekkert, en Þórdís min er að koma til mín eftir bara 14. daga, jíbbí:D sjitt hvað þetta styttist og líður hratt:)
og ég er búin í prófum, bíð bara spennt eftir að fá úr þeim, gekk bara mjög vel..
ég var að prufa að setja svona myndir bara inná þessa síðu og það er neðst bara nokkrar myndir ég er nátturlega ekki með mína tölvu og engar af mínum myndum, þannig að þetta er bara það sem stal á netinu..

Jæja nenni ekki að bulla meira í ykkur, finnst heldur ekkert svo gaman að blogga..!
já en 1 sem ég gleymdi að deila með ykkur, ég er að taka FOKKING endajaxl og það er ógó vont, klikkað bólgin allt allur pakkinn:cry:, þannig að þið þarna heima verðið bara ánægð að sleppa við að hlusta á vælið í mér.. bitnar allt á fólkinu sem ég bý með og henni Jónínu:D

María Dröfn over and out from lux ;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

01.05.2007 20:03:18 / Maria

Tölvan mín í fokki!

Veit ekki alveg hvað kom fyrir tölvuna mína, en hún er sko ekki sjálfum sér lík... frosnar þegar henni hentar og þá þarf ég að slökkva á henni og eitthvað rugl...

það er búið að vera crazy doing hjá mér í babysitting, var að passa alla helgina, og var að koma heim frá því að passa, og er að fara passa annað kvöld þar sem að Tolli verður með myndlistasýningu hérna og Bubbi verður að spila á eftir henni á vegum kaupthing hérna í lúxinni, og flestir nátturlega að fara þanngað, svo hittum við Jónína auðvitað hann Bubba á rölltinu á göngugötunni í miðbænum og heilsaði ég auðvitað kallinum og félögum hans, hann var svolítið góður með sig og ætlaði ekki að heilsa í fyrstu bara hinir 2 félagar hans, en svo heilaði ég honum sér, þá heilsaði hann líka, hann vildi bara svona sérkveðju;)

Ég og Jónína skelltum okkar í parc merl á laugardaginn með börnin, ég var alveg svaka mamma í mér og smurði brauð og bakaði pain chocolate, og tókum með okkur og borðum hádegisverðinn þar, þetta er bara fyrir ofan skólann sem krakkarnir okkar eru í, flottur rólóvöllur þarna og stórt svæði til að liggja bara í grasinu, vatn með öndum, fiskum og skjaldbökum, þannig að við eyddum bara deginum þar og enduðum svo á að elda bara heima hjá mér og hafa það gott í sólinni..:)

Svo var auðvitað djamm í gær, við sleppum því ekki þegar það er frídagur daginn eftir.. fórum á Arizona veitingarstaðinn sem hann Villi kokkur er að vinna á, og hann eldaði alveg GEGGJAÐAN mat handa okkur, um svo 7 tegurndir af sósum, sem var mjög gott og gaman þar sem að lúxarar eru ekki mikið fyrir sósurnar, og alveg geggjaður matur bara í alla staði:) þökk sé hans Villa:!: svo var ferðinni auðvitað heitið "heim" til okkar peranna sem sagt á The Víking, Chilluðum þar um stund þar til það var lokað þá fórum við á Melosina og það var alveg ágætt svona þar, en mér var orðið svo illt í löppuðum að ég ákvað að skella mér heim að skipta um skó.. og þegar ég kom til baka voru stelpunar farnar á White því það var búið að loka melosina og þær stoppuðu ekkert svo lengi þar því flestar voru að fara heim þegar ég kom til baka.. og þá tók ég bara Jónínu með mér heim, PS: Sigga og Lilja voru DRUSLUR kvölsins..:klikk: og Þetta kvöld, var síðasta djammið okkar hérna úti með Völu og Fa, það á eftir að vera svolítið skrýtið þegar þær fara því ég er búin að vera með þeim hérna úti í 11 mán, og þegar þær fara verða allar stelpurnar farnar sem voru hérna þegar ég kom...8| en við hittumst allar aftur á Íslandi.. hehe ég og jónína vorum geggjað fyndnar og gáfum þeim bol sem stendur á i'm the most important thing in my life:)

En þar sem að myndavélin mín er líka í einhverju fokki þá eru ekkert að koma myndir frá mér í bráð Nema Sigga Nigga Drusla lætur mig fá myndirnar sýnar..

1. Maí í dag sem þýðir að það styttist óðum í ammlið mitt 28 dagar:) og 23 dagar í að Þórdís komi til mín:D:D:haha:
En ég ætla að fara koma mér í bælið, snemma svona 1x;)

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

20.04.2007 16:26:29 / Maria

I feel like im old..

Hehe.. já ég lagði mig aðeins með henni litlu áðan, og þegar ég leit á símann þá leit ég á dagsetninguna og fékk bara svona flash back, og fór að hugsa akkurat í dag eru 7 ár síðan ég fermdist, vá við eigum 7 ára fermingarafmæli í dag.. 8|
Mér sem finnst svo stutt síðan ég fermdist, svo stutt síðan ég var að velja mér fötin og fara í greiðslu og allt það, fermingargræjurnar, sjónvarpið, og allt þetta virkar fullkomlega..
Já þetta er rosalega skrýtið að spá í þetta, núna sé ég hvað tíminn líður rosalega HRATT, í fljótubragði dettur mér í hug 4 bekkjarsystkini mín sem eiga börn, og 1 af þeim á nú 2.. og ég er að verða búin að vera hérna í lúxinni í ár, og fer að fara heim:( langar ekki einu sinni að tala um það..

já það er alltaf gaman að spá smá í hlutunum:)
Eg og vala skelltum okkur í dýragarðinn í france á þriðjudaginn og var það alveg svaka stuð, stundum hélt ég að ég og Vala værum spenntari yfir þessu heldur en börnin, hef farið í dýragarð áður en ekki þennan mér fannst við geta komið svo nálægt dýrunum þarna, við borðuðum á stað bara við hliðina á gíröffunum og lá við að það væri hægt að klappa þeim sko, og svo var hægt að gefa öpunum, geitunum, og freku fuglunum popp:)
Og skelltum við Jónína okkur í sund í Bitburg með börnin rosalega flott sundlaug og gott að vera með börnin þar, eina sem er hérna núna er að það er ekki búið að opna útilaugarnar því það er ekki vaninn að það sé svona heitt hérna á þessum tíma, en það er bara gott sko, ég er alveg að fíla þessa sól, en verður samt gott að fá smá rigningu í næstu viku eða helgi..
Kannksi að marr kíki bara á djammið í bitburg í kvöld, svona prufa eitthvað nýtt, þetta er orðin svolítil rútína sem marr er kominn í hérna, svo það er alltaf gott að prufa eitthvað annað 1 kvöld:)

Jæja ég er að spá í að hafa þetta ekkert lengra í bili.. því þetta er að verða eitthvað tilgangslaust blogg.. og það koma engar myndir inn í bili þar sem myndavélin mín er í einhverju klikki..

María Kveður og Segir *Gleiðilegt sumar* og uppáhlads sumar barnið mitt María Hödd innilega til hamingju með ammlið aftur:D var að spá í að skella inn gamallri mynd af okkur síðan versló 2004.. en lét það alveg vera:)


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 20:17:17 / Maria

bam-bam-bam.. :)

Þá kemur loksins bloggið sem þið hafið verið að biða eftir..:) ég er bara ekki búin að vera í stuði til að blogga, og er það reyndar ekkert þannig núna.. en læt mig hafa það:)
það er búið að vera svo geggjað veður síðan ég kom frá spáni þannig að ég er bara búin að vera úti og ekkert búin að nenna að blogga þegar ég kíki í tölvuna:D það á að vera 27 stiga hiti um helgina..,mmm:D me like.. hehe

jæja þá er spánn yfirstaðinn, vá,sjitt, omg.. hvað það var geggjað gaman:D
Byrjaði reyndar með smá stressi á flugvellinum á spáni eitthvað rugl með hótelið, vitlaustar upplýsingar og svona, þannig að við fórum í svona upplýsingamiðstöð og gaurinn þar hjálpaði okkur að afbóka hótelið sem var ekki nálægt salou, bara við rætur barcelona, og hann fann annað handa okkur sem var á Tarragona þar sem hann bjó, sem er bara 10 min frá salou og portaventura, hehe já ég ætlaði nú að skrifa í síðasta bloggi, stærðsti rússibani í evrópu ekki alveg heimi, veit ekki hvort ég myndi láta plata mig í hann:D
og hótelið var hið fínasta bara, og frábær staður, fínir veitingastaðir nálægt, og gleymum ekki djamminu það var bara geggjað, líkalega í 2 sæti á eftir tívolíinu:) við vorum bæði kvöldin bara í Tarragona, reyndar kíktum til Salou en vorum ekkert að fíla það svolítið af yngri krökkum.. kannksi þarf marr bara að venjast því áður en marr kemur heim:/
Síðan fórum við 2x í PortAventura og samtals 10x í stóra rússibanan sem er með 8 heil hrigi í 1 ferð..:D kíktum á ströndina 1x eina daginn sem veðrið bauð uppá það ringdi fyrstu 2 dagna meira segja bara klikkuð rigning eiginlega hagnél 1 daginn og brjálaðar þrumur og eldingar.. vorum niðri í bæ þegar það byrjaði og vorum rennandi þannig að það var bara taxi heim..

já bara frábær ferð í alla staði, ég nenni ekki að gera svaka blogg um hana, spurjði bara ef þið viljið vita eitthvað..:)
Lag ferðarinnar sem ég er enn með á heilanum i wanna dance with somebody! og sexxeee..
Snildnasta setning sem við fengum var.. bam-bam-bam foki-foki-foki..hehe

ákvað að skella inn hérna 1 auglýsinu.. allir að kíkja inná www.partyboxid.com

og síðan var ég að skella inn 130 myndum frá ferðinni http://public.fotki.com/mariadrofn3

jæja svaka leti í minni, hef ekkert mikið meira að segja.. þannig að ég ætla að fara horfa á þætti í tölvunni;)

Take care friend's;)


» 8 hafa sagt sína skoðun

03.04.2007 12:28:13 / Maria

Stannslaust stuð að Eilífu.. :).

Salou Here we come:D
Já, ég Lilja og Sigga ákáðum að skella okkur bara til spánar í hluta af páskafríinu fyrst alir eru að fara eitthvað, þetta var nú bara snögg ákveðið sem ég held að hafi bara verið gott því það er búinn að vera svo mikill spenningur hjá okkur:)
Panntað var flug í gær og erum að fara á morgun sko eða í nótt:) pönntuðum líka hótel íbúð í gær, ætlum sko bara að hafa það gott vera með ibúð með eldhúsi fyrir okkar, enda erum við svo duglegar húsmæður.. svo verður sko Djammið á spáni skoðað vel, og TÍVOLÍIÐ.. :) OMG hvað mér hlakkar til að fara í það, fara í stæðsta rússibana í heimi, ég ætla nú ekkert að vera minni manneska en Unnur Fjóla, hún skellti sér í hann þegar hann var nýkominn, þannig að núna er komið að mér að láta reyna á hann:)
EIN TÓM GLEÐI SKO :D

Seasons

gvööð hvað mér hlakkar til að fara tana.. ég hata ekki sólina NEI:D
Ætla að verða brúna eins og Brownie Cake eins og einn frændi minn í eyjum var kallaður ´hérna á yngri árum, Já margt fréttir marr hérna í lúxlandinu;)

Skelltum okkur auðvitað nokkrar á djammið á föstudaginn og meiri hlutinn var bara Edrú, og vitið menn við skemmtum okkur bara alveg geggjað vel, vorum alveg á flippinu myndirnar eiga bara eftir að segja sitt þegar þær koma inn:) annað hvort í kvöld eða bara eftir sólarferðina.. og svo var bara komið heim í fyrrikanntinum eða já svona, allavegana þónokkuð fyrr en á laugardeginum, ég var bara ánægð að enginn var kominn á fætur þegar ég skreið inn, Ég jónína og Gutti vorum á muko þanngað til lokaði (báðum megin) og liggur við að það var skellt í lás á eftir okkur við fegnum svona "Flash Back" eins og við vorum bara heima og það er svolítill vani að fara alltaf síðastur út..:)

Já ég veit ekkert hvað ég á að segja ykkur þar sem að ég er svo spennt fyrir ferðinni, kemur ekkert annað fyrir í hausnum á mér, fór með jónínu í bíó í gær á myndina með Jude law, og stundum datt ég út því ég var svo mikið að hugsa, myndin var ágæt en ekkert eitthvað must að sjá, nema til að sjá hann, eins og Kristín sagði í morgun þegar ég var að segja frá myndinni, Þannig að ef fólk fer á hana þá er það bara ástæðan að horfa á hann, og ég gæti farið á hvaða mynd sem er með honum ef hann er aðalleikarinn:D
En nóg af bloggi í dag, ætla að fara klára að pakka niður og græja allt áður en ég fer að sækja krakkana í skólann..:)

Endilega skiljið eftir smá comment.. það kemur ekki blogg frá mér fyrr en í fyrsta lagi á þriðjudaginn því ég legg af stað í nótt til Spánar..
ÉG TRÚI ÞVÍ BARA EKKI ÉG ER AÐ FARA TIL SPÁNAR:D:D

Seasons

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 11:30:58 / Maria

M&M.. :)

Datt þetta allt í einu í hug M&M var að hugsa um hvar ég skyldu vinna í sumar og haust.. uff? þá duttu gamlir tímar upp í hausinn, held að það sé bara ekkert gaman eiginlega bara hundleiðinlegt að vinna í rækjunni ef það verður engin María þar? en gussi er enn þar:)
En já ég verð að fara skoða þetta betur hvar vinna skal:!:

En nennti ekkert að blogga í síðustu viku það var bara snjór og frekar kalt og ég fór ekkert í neitt blogg stuð, ég þurfti að MOKA til að koma bílnum út úr bílastæðinu, þetta gerist bara sárasjaldan hérna, reyndar var þetta bmw-inn og hann er náttlega afturhjóladrifinn og það er halli í bílastæðinu..!
En fábær helgi af baki, byrjaði reyndar á því að fá þær fréttir um daginn að ég fengi að vera ein heima frá fimmtu-mánudags, það var bara very nice:) byrjaði á því á miðvikudagskvöldið að fara á svona gigalo á VIP það voru 2 mjög flottir karlstripparar sem kunnu sko að dansa:) tók nokkrar myndir af því síðan eftir það var bara skella sér á djammið og ekkert haft fyrir því að koma snemma heim:D
Svo á fimmtudagskvöldið voru við perurnar geggjað spenntar yfir að vera að fara á p.diddy og skelltum okkur og sáum kallinn, en hann var ekkert að hafa fyrir að syngja fyrir okkur, hann var bara með party, Ekki alveg 35 evru viðri að fá bara að sjá hann, ég náði nokkrum góðum myndum þegar verðirnir hann stóru voru ekki fyrir..
hann át sína súkkulaði köku fyrir okkur, og við nenntum ekki að hanga yfir honum þarna og það var sagt að hann væri að fara syngja og ég og sigrún trúðum því ekki alveg, þannig að við löbbuðum út og hver haldiði að hafi  komið út á sama tíma og við P diddy, þannig að við fylgdumst með honum fara á Reinsanum sínum í burtu og náðum myndaf því, eða ég Sigrún var svo hlýðin að taka ekki mynd :)
Eftir þetta nenntum við sigrún ekkert heim klukkan var að verða 2 eða eitthvað og við máttum báðar sofa út þannig að við skelltum okkur bara á white, og við eiginlega áttum dansgólfið til svona 5.. :)
þegar heim var komið ákvað ég að skella mer í sturtu og blása á mér hárið þar sem ég var að fara í klippingu daginn eftir og vildi ekki koma með alveg nýþvegið hár, og sem betur fer gerði ég það, því hún jónína vakti mig á föstudagsmorguninn og Aron var með gat á enninu ég hoppaði í næstu föt sem eg sá og til þeirra og við uppá sjúkrahús vorum þar heillengi, síðan fórum við ólöf í klippingu þannig að minn dagur fór í sjúkrahús og hárgreiðslustofu:)

Svo var það auðvitað djamm á föstudaginn svaka stuð og á laugardaginn var Aupair dagur við fórum nokkrar að versla í matinn og hittumst svo heima hjá mér og Fa eldaði handa okkur og við höfðum alveg geggjað gaman síðan var kíkt á víking þar sem aðal perupartyið var, og við töpuðum 1 klst á þessu djammi klukkan 02:00, vað klukkan 03:00 þannig að núna er 2 tíma munur hjá okkur hérna í lúx og íslandi.. en þegar þreytan var farin að segja til sín þá var kominn morgunn og lestarstöðin búin að opna þannig að við fórum að fengum okkur að borða og fórum svo heim að sofa:)

Nýjar myndir strippshowið og fleira, það albúm er reyndar lokað, en lykilorið stendur þarna á myndasíðunni, bara vera gáfaður;) ef þið fattið ekki lykilorðið þá bara spyrja mig..
http://public.fotki.com/mariadrofn2/

Jæja Barnið að vakna og sólin skín, best að fara gefa henni að borða og fara út að njóta sólarinnar meðan hún er:)

  

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 09:51:45 / Maria

Í sól og sumaryl...

Sit hérna úti á palli í góða verðinu, og þar sem að stúlkan sem ég er að passa er svo sjálfstæð þá er ég hætt að nenna reyna leika við hana, henni finnst það sko ekkert gaman, þannig að ég ákvað bara að ná í tölvuna og hafa það gott:)
Var að skoða myndir af ferðum okkar í Walibi vá hvað mér hlakkar til þegar það opnar skilst í enda Mars eða þá að fara í eitthvað annað tívolí like phantasialand:D

JÁ..!  ég er að hlusta á FM957, finnst mjög gaman að hlusta á super eitthver svona vani síðan úr vinnunni:) og já hvað ég er pirruð þau eru að tala um dóma á Íslandi.. Getur einhver komið með góða skýtingu afhverju þeir eru svona stuttir á þessu blessaða landi?
Var verið að dæma 1 í 12 mánaða fangelsi, þar af 9 mánuði skilorðsbundið fyrir kynferðisbrot á 7 stelpum á aldrinum 6-9 ára..
Svo fyrir stuttu var annar, hann Ólafur Barði Kristjánsson. Hann var í héraðsdómi dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn stúlkubörnum. Yngsta fórnarlambið var þriggja ára telpa.
Ég endurtek: Þriggja ára. Meira að segja þá mildi héraðsdómur dóminn í 1 og hálft ár, þannig að hann þar í mesta lagi að sitja inni í 1 ár, það er ekki nóg til að skammst sín fyrir svona! 
Mér finnst þetta alveg ógeðslegt, þessir kallar eiga skilið að sitja inni MILKU lengur..
Eins og með Geir Þórisson fanga í Virginíu, situr þar inní í meiri en 10 ár fyrir að lemja annan mann okey gaurinn kom ekki vel útúr því, en samt finnst hann ekki eiga að vera svo lengi, ef þetta hefði verið á íslandi þá hefði hann ábbla bara fengið skilorðistbundið í 3mán eða eitthvað..! ohh hvað þetta pirrar mig..:evil: hefur einhver svör við þessum fáranleika?

Jæja búin að losa smá af reiðinni, var að skella inn myndum af Parísarferðinni og smá af djamminu á miðvikudaginn og helginni fyrir París inná.. http://public.fotki.com/mariadrofn2

Og svo ætlaði ég að óska honum Pabba mínum til hamingju með afmælið, hann yngist alltaf og yngist kallinn.. haha:D ný orðinn 24 ára, eða var það öfugt? æji bara man það ekki, svo skilst mér að hann ætli að bjóða vel völdum fjölskyldu meðlimum á einhverja sólarströnd í sumar, þannig að það er bara eintóm hamingja;)

ég ætla að skella mér inn að svæfa barnið svo að ég geti farið að njóta sólarinnar:) sumir safna frímerkjum, og fleiru, en ég er að safna brúnku8) 


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 17:38:35 / Maria

Ég og Effel like this;)

Parísar ferðin á enda, 3 skipið sem að ég fer í þessa yndislegu borg og ég skal lofa ykkur að þetta var sko ekki það síðasta:)
Við Ætluðum að vera komnað á lestarstöðina í fyrri kanntinum til að hafa nægan tíma en endaði nú á því að við höfðum bara 2 sec, leið og við stukkum inní lestina lokaðist hún og fór af stað og sem betur fer stukkum við í 1 vagn og löbbuðum bara þaðan í okkar sem var númer 18:) ég hélt sko virkilega að ég væri að fara missa af lestinni, sko þegar við voum hálfnaðar á Gare þá fattaði jónína að hennar miðar væru heim og ég með mína og Ólafar og Sigrúnar, þannig að ég snéri við og sótti svo kristínu og viðurkenni alveg að ég keyri eins og VITLEYSINGUR:!: keyrði heil lengi á BUS línu og já Kristínu perumömmu var ekkert orðið saman en hélt sér bara í.. við hlupum í gegnum lestarstöðina Perupabbi sigrúnar öskraði hvaða pall við ættum að fara á.. þvílíkt stress, en þetta tókst á endanum:D

Loksins Þegar við komum til parísar þá vorum við bara strax hundeltar af einhverjum svertingja hóp sumum var ekki orðið sama, en við héldum bara ferðinni áfram á hótelið og síðan auðvitað að hitta hann undur fallega Effel.. og vonuðum bara að okkur yrði ekki hent útaf hótelinu því að 2 ef ekki 3 færðu sig um vagn í lestinni, þau voru ekki að meika svona fyndið og skemmtilegt fólk sko..
Svo á laugardaginn var farið að honum aftur og þaðan tekinn sightseeing um parís og ég sá allt í annað sinn, en það var bara gaman auðvitað..
og þegar það var allt búið þá var skellt sér uppá hótel og legið uppí rúmmi með ipodinn og sungið fyrir Jónínu áður en ég nennti að taka mig til, ég og jónína þurftum ekkert mikið að taka okkur til enda undurfallegar.. (haha, er að reyna læra af Sigrúnu og Ólöfu)
Og skellt sér á mjög góðan matsölustað rétt hjá Sigurboganum, Effel skoðaður aftur og svo tékkað á djamminu, já eins og einhver sagði eftir að hafa beðið í langan tíma í strætó skýli að skoða leigubílstjóra sem okkur leist á, hann skutlaði okkur á djammið og það var bara mjög fínt, þótt við vorum ekkert svo lengi enda þreyttar eftir langan dag:)
Á sunnudaginn var eitthvað lítið gert skilað af okkur hótelinu og skoðað Effel í síðasta sinn erfitt að kveðja þetta grey, enda ekki allir sem hafa farið uppá Effel:) haha..
Ferðin tekinn á sigurbogann og snætt þar, samt ekki á sama stað aftur sko neihh, fórum á sitthvorn staðinn macca d og quick:) settum svo á gangstéttina þar og sóluðum okkur þanngað til tími var kominn að fara á lestarstöðina.. :)
og já auj alveg rétt.. þegar við vorum komin í ;Metz þá var svona 30 min til lúx kom einhver ógeðis  róna-dópisti inní lestina og ætlaði að reyna spjalla við okkur, settist svona hinum megin við okkur og babblaði sína frönsku svo þegar lestin fór af stað fór hann bara að grenja og spurði alltaf hvort lestin væri að fara til lúx, hehe sumum var ekki orðið sama á tímabili en hann lét sig svo hverfa, greyið komst ábbla ekki aftur heim til sín..

en svona var ferðin okkur í grófum dráttum nennti ekki að koma með almennilega sögu eins og síðast.. já gelymdi að við létum teikna af okkur fjórum skvísunum skrípa mynd geggjað töff.. hehe en það minnti mig sko margt á Kristínu í þessari ferð.. hehe klikkað gaman bara, meira að segja sami gaur að vinna í lobbýinu og alles..
PIRRINGUR ferðarinnar: voru þessar hell undur ground löggur, sekta fólk fyrir að fara 2 og 2 saman í gengum hliðin eða hoppa yfir þau og þannig, og þeir tékka á miðunum manns þegar marr er búinn að fara í gegnum hliðin og fyrir 1 horn, og auðvitað er marr búinn að henda miðunum fyrir það horn.. eða í öll skiptin fyrir það en ekki eftir sko! þannig að við fengum 45 evrur í sekt!! :( en við létum það ekki skemma ferðina:)

Svo núna á laugardaginn 10.Mars hefði hann Afi minn orðið 80.ára
Og hún elsku Sigrún 21 árs 12. Mars.. Til hamingu með það fallegustu englarnir mínir;)
Og sunnudaginn 11.Mars fékk ég þær leiðinlegu fréttir að Sigurgeir Númi hafði tekið líf sítt, það er hræðilegt að heyra af svona. En eiga flestir sér góðar minningar um hann sem geymast í hjartanu.. Gamli bílinn sem hann þeyttist hérna um á 1 ári sínu í frammhaldi, gleymist aldrei:)og á fjölskylda hans og vinir alla mína samúð á þessum sorgardögum.. †Hvíldu í friði†

Jæja ég ætla að fara fram og tékka hvort maturinn sé ekki að verða til eða hvort ég geti ekki gert eitthvað til að hjálpa, uppáhladspastað mitt í matinn hérna mmm:)
María Dröfn lúxpera over and out;)


» 9 hafa sagt sína skoðun

09.03.2007 07:54:11 / Maria

París again:)

Jæja þá fer að styttast í París, og mér hlakkar nú svolítið til að fara þangað aftur, þetta er alveg bara æðisleg borg:) við verðum á sama hóteli og ég og Kristín vorum á síðast, Æji Kristín geturu ekki bara skellt þér með flugi til Parísar í kvöld, þú þarft að vera þarna með okkur.. Vona bara að allt gangi svona vel eins og hjá okkur;)
Og hehe það verður passað sig á öllum stigum, engin kapphlaup og reynt að fara á fleiri en 1 matsölustað:lol:
Svo þurfum við stelpurnar að fara skoða að fara í fleiri ferðir hérna, langar klikkað til Köln í tívolíið sem ég Anna Fred og Berglind gerum okkur einu sinni ferð í, og amsterdam bíður alveg eftir okkur, og svo verður marr að fara til eitthvers af heitu löndunum;)
hvað Segiru svo Hrabba ertu að fara 3x til útlanda á þessu ári:haha:

Það er ekkert svo mikið búið að gerast hérna síðan síðast, bara same old same, sem er ekkert gaman að heyra alltaf aftur og aftur,En ég og jónína ætlum að fara vera duglegri og kaupa okkur kort í Top squash sem er líkamsræktarstöð hérna, fundum eina alveg mjög fína hérna, enda ekki spurning íslenskir eigendur þar á fer:)

Ég og aðrir fjölskyldumeðlimir á þessu heimili erum farin að hafa alvarlegar áhyggjur af yngstu gellunni sem er bara 16 mánaða og er húkked á sjónvarpinu8| Hún er farin að kveikja á því sjálf, og sest svo bara fyrir framan það, og er eiginlega alveg sama hvað er í því.. Maður er farin að draga hana frá því og hún er ekki orðin 1 og hálfs árs..:S
Veit ekki alveg hvað ég á að segja ykkur, sit bara hérna inní stofu og hafði ekkert betra að gera enn að blogga meðan barnið horfir á sjónvarpið núna.. svo ætlum við Jónína að kíkja í Auchan á ettir og versla smá8) og fá okkur síðan THAI-lenskan mat.. mmmm Kristín langar þér ekkert að koma með okkur þangað, fólkið á staðnum er ábbla ferið að sakna okkar.. hef ekker farið síðan þú fórst;)

En best að hafa þetta ekki mikið lengra svo að einhver nenni að kvittað meðan ég er í parís, og ég ætla að fara pakka einhverju niður og slökkva á belssaða sjónvarpinu;)

María Dröfn kveður og bíður spennt eftir að sjá Effek vin minn aftur:D


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 16:13:50 / Maria

20.000 gesturinn :)

Já hver ætlar að vera númer 20þús.. endilega skildu eftir comment:D
En helgin var bara alveg frábær sko..:) og vikan bara líka.. svo er það bara París Baby next weekend, há fimma, very nice:D

Nenni bara ekkert að blogga mikið, hef heldur ekkert svo mikið að segja, þannig að segið þið mér bara eitthvað..
Ætla að skella inn smá svona dæmi sem að ég gerði á síðunni Sigríðar;)

Smá spurningar fyrir ykkur hnoðrarnir mínir...0 
1.Þekkiru mig persónulega?
2.Hvað finnst þér um mig?
3.Langar þér að kynnast mér betur?
4.Myndiru vilja koma með mér einni a eyðieyju í viku?
5.Ef þú mættir bara taka 3 hluti með þér á eyðieyjuna, hvað mindi það vera?
6.hvað mundiru gera ef þú værir fastur/föst í lyftu með mér?
7.Ertu með tattoo eða piercing?
8.Mundiru gráta ef ég mundi deyja?
9.Hver er versti kækurinn þinn?
10.Hvað minnir þig á mig?
11.Mynduru verja mig ef eitthver væri að níðast á mér?
12. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo að ég geti svarað þér á móti0?
kv. María Dröfn..
Ætla að skella mér aðeins út á pall, enda alveg frábært verður í dag:D

» 8 hafa sagt sína skoðun

28.02.2007 07:48:51 / Maria

Stubbarnir,stubbarnir segja :)

Hehe.. ég er alveg að fá NETT ógeð á þessum stubbum, það er beðið um þá ða hverjum degi og oft á dag, lala kemur alltaf:) En gaman að hún litla getur horft svona á sjónvarpið, hún situr bara í litla sófanum sínum og glápir.. ég verð nú að viðurkenna að þetta minnir mig óneitanlega mikið á hana litlu systur mína, hún var húkked á þeim þegar hún var líka á þessum aldri;)

en já ég er komin til baka úr skíðaferðinni reyndar á sunnudaginn, en það er annað mál, ekkert búin að nenna að blogga, er búin að vera að skella inn myndum og svona, og hitta eitthvað af perunum hérna:) uff erum orðin svo mörg, ekki margar því það er sko 1 karlkyns með okkur í hópnum:)
En í ölpunum í Méribel var alveg geggjað, frábært verður alltaf daginn nema síðast þá var reyndar gott líka en snjóaði bara aðeins.. vorum með annari fjölskyldu í svona skíðahúsi sem var bara staðsett á lang besta staðnum eða bara í einni brekkunni sem var bara við miðsvæðið.. þetta er nátturlega alveg huges svæði, ég þorði sko ekki mikið að fara eitthvað ein þarna því þetta var svo stórt og mikið, 3 risa dalir og lyftur út um allt, ég var bara hrædd um að lenta óvarst í einhverri svartri (erfiðri) brekku og þurfa að fara hana niður.. en það gerist sem betur fer ekki.. Enda stæðsa skíðasvæði í heimi.. já myndirnar segja bara allt um þessa ferð, svo voru barir og skemmtistaðir þarna líka, auðvitað slepptum við ekkert að kíkja á  þá að voru 2 aðrar ísl fjölskyldur þarna og 2 aðrar perur sem var bara mjög fínt;)
Svo þar sem að ég er ekkert góð á skíðum þá fór ég 1 dag í skíðakennslu og það var bara mjög fínt, læra að beita sér rétt og gera þetta rétt:) þannig að núna er það bara Tindastóll í haust þegar hann opnar.. hehe:)
og ótrúlegt en satt þá kom ég alveg ósködduð heim, ekkert fótbrotin.. hehe það hefði svo verið eitthvað að minni brotóheppni..

svo er vikan bara búin að vera frekar fljót að líða, kíktum í pool á sunnudaginn, svo bíó á mánudaginn á bllod diamood hún er alveg rosalega góð:) hef aldrei séð svona mikið af myndum í bíó eins og eftir ég kom hingað út:) svo skelltum við okkur á ískaffihús í gær og svo í pool þar sem að fleiri perulingar voru:)
síðan er ég nátturlega bara búin að vera heima með veika barnið "mitt", hún er búin að vera með æluna sem ég ætla rétt að vona að ég sleppi við, ég er samt búin að kúgast í öll skiptin sem að ég þríf eftir hana..:!: veit ekki hvernig á á eftir að fara að því að fara heim, þegar ég kem alveg heim án hennar.. mér fannst mér oft vanta eitthvað í jólafríinu.. ég held að ég verði bara að taka hana með mér heim, mamma og pabba drífa í því að fara stækka húsið, og þá aðallega herbergið mitt:D

Svo er ég að fara flytja mig yfir í næstu götu til Magga og maju í 3 daga, fer þanngað á eftir og verð fram á föstudagskvöld, þau eru að fara skreppa í eitthvað ferðalag, þannig að það verður svaka stuð hjá mér.. :) svo er ég að spá í að láta Kristínu peru"mömmu" til að tékka hvort það sé ekki laust í klippinu og lit fyrir mig á laugardaginn, langar svo að fara breyta eitthvað til.. :)

Sá þessa mynd af systrumm mínum síðan á öskudaginn;)

Elma mín ég er bara að gefa þér meiri tíma í að koma hingað út til mín í heimsókn..
en ég fæ mér erlendanríkisborgararétt eftir þessa aupair dvöld því þá flyt ég bara hingað:D
En já Þorgerður verður endilega að skella þér hingað í heimsókn, geggjað gaman hérna, kannksi að þú og Þórdís getið bara líka komið á sama tíma:D
Kveðja hérðan úr lúxlandinu;)

PS: HELLINGUR AF NÝJUM MYNDUM..:!: http://public.fotki.com/mariadrofn1 tékk it out;)


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.02.2007 22:23:13 / Maria

Skíðaferð í France:)

Jæja nu er ég sko búin að vera æfa mig í frönskunni:)
sko ég held að aðalmálið sé að kunna Vous parlez anglais ? sem þýðir talaru Ensku þetta kendi hún Kristín perumamma mér og Krirstínu áður en við fórum til Parísar..
svo afþví að skíðakunnáttan mín er ekki góð þá þarf ég að kunna þetta Aidez-moi! sem þýðir hjálp.. La neige est comment? svo þetta sem þýðir hvernig er snjórinn..
og síðast en ekki síst
Où est le refuge le plus proche? sem er hvar er næsta skýli eða eitthvað þannig.. en nóg komið um þetta mál..:!:

ykkur hef ég sko ekki mikið að segja ákvað að láta ykkur vita að ég sé að fara í þessa ferð, því þið sem vissuð það ekki haldið að ég sé ekki dauð.. hehe sérstaklega því ég er alltaf á msn, en verð það ekki nuna í 8 daga8| og ef það er ekki símasamband þá á ég eftir að deyja.. hehe segi svona..:)
Þetta verður ábbla voða Nice vorum að fylla bílinn áðan, leggjum í hann rétt fyrir 5 í fyrramálið ég kannski bjalla bara í stelpurnar og tékka á stemmarnum í bænum, þegar ég verð að vakna:P við verðum 2 fjölsk saman í svona húsi, samt ekkert eins flott og sumarhúsið okkar var, en það er sundlaug í þessu líka og svona þannig að það verður reynt að hafa það gott, og verður spáin er bara fín þannig að allt til..
Þau keyptu á mig áðan svona hlýjan undirfatnað á einhverjar 100evur8| crazzy people.. :)

En ég ætlaði bara að láta vita af mér  og hafa þetta stutt svo að þið nennið að kvitta:)
hlakka til að heyra í ykkur þegar ég kem til baka;)
JÁ ALVEG RÉTT..:!: stóri tilgangur með þessu bloggi var að segja ykkur.. dadaramm.. að hún María Dröfn Guðanádóttir ÆTlar að vera pínu lengur í lúxemborginni ég átti panntað flug heim 24 maí en seinkaði því fram í júlí :) ég veit það vel að ég er búin að vera á leiðinni heim síðan í ágúst en það er bara svo gaman hérna.. er það ekki lúxperur:haha: :D
 jíbbý, sumir eru ánægðir með það og aðrir ekki..
En allavegana mér langar að sjá hverjir eru að skoða síðana mína meðan ég verð í burtu common þið hafið nú 8 daga í að kvitta:D
María Dröfn Lúxpera kveður og nennir ekki að vakna eftir 4 tíma:S en er pínu spennt fyrir skíðaferðinni:D


» 10 hafa sagt sína skoðun

15.02.2007 13:26:09 / Maria

Sól,sól skín á mig.. :D

Geggjað verður i lúxinni núna..:!:
Ég vill samt fá smá meiri snjó og svo í byrjun Mars má góða veðrið byrja að koma.. samt ætla ég ekki mikið að kvarta sit hérna úti á palli á bolnum að blogga í "sólbaði" líður eins og versta útlendingi, en á marr ekki að nota þetta verður:D
Ég ætlaði að fara leggja mig áðan svo bara sá ég það að ég get bara sofið nó einhvern tímann seinna.. Vá hvað ég skil ekki afhverju mér langaði heim í maí.. ég er mikið að spá í að vera bara kannksi lengur hérna tými ekki að fara þegar sumarið er að koma.. :)

Svo vona ég að það verði nú einhver sól hjá okkur í fjöllunum næstu vikuna, því ég er nátturlega að fara í alpana í frakklandi á sunnudaginn eða laugardagsnóttina, leggjum af stað klukkan 5 um morguninn8| og keyrðir verða 700km:!: vona nú samt að það verði nú einhver stopp á leiðinni, þótt við keyrðum nú 1000km í sumar og það var stoppað 3x, á 11 tímum:|
En við verum þar í viku, búið er að kaupa allt skíðadress og allt sem því fylgir, þau sögðu að ég væri núna alveg ready, ég spurði hvort það væri nu ekki hægt að kaupa skíða kunnáttu líka:D
En ég get alveg bjargað mér en enginn skíðari skohh..

Já svo var Valitínusardagurinn í gær, til hamingju með það fólk´s ;) vonandi voruð þið öll góð við elskuna ykkar:)
Ég, Sigrún,Berglind,Vala og Fa kíktum á víking í gær þar átti að vera einhver leikur fyrir Sigle svona eins og er alltaf í bíómyndunum, sitja og spjalla í 5 min og svo tala við næsta og næsta og svo tékka hvern marr líst best á.. ég og Sigrun vorum alveg komnar í stellingar við að horfa á þetta, en svo bara var þetta ekki, okkur hlakkaði svo til að fylgjast með..
Ég og jónína erum að spá í að fara í ræktina bara í kvöld og kannksi sund á eftir, og ef við verðum vel upplagðar þá verður kannksi tekinn 1 púlleikur eða svo, eru fleiri game í það?

Hey já og svo er verið að plana aðra ferð til Parísar förum ábbla 9-11 mars.. ohh það var svo gaman hjá mér og Kristínu síðast og allt gekk svo vel, vona bara að það verði eins, það er enn laust á sama hóteli og síðast þannig að kannksi verðum við bara þar líka:D víhí..

jæja ég ætla að fara inn með tölvuna svo að hún skemmist ekki í hitnaum:D og svo að nágrannarnir hætti að hlægja af mér.. :haha:

María Kveður í sólskinsskapi:D

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

11.02.2007 17:22:20 / Maria

1,2 og missa sig:)

held að það sé bara gott orð um föstudagskvöldið..
VÁHÁ hvað var gaman, ég og jónína byrjuðum á að fara til þýskalnds í sveitina til Sigrúnar:D og vorum þar bara að chilla meðan hún var að passa og við vorum að taka okkur til, síðan var ferðinni heitið á víking þar sem að íslenska hljómsveitin Sólon var að spila og var hún okkur íslendingunum bara til sóma:) við skemmtu okkur allavegana "grúpíurnar" Dönsuðum eins og vitleysingjar og já get bara ekki mikið meira lýst af því, ég reynda að taka Silvíu Nótt með þeim en þeir kunni ekki einu sinni taktinn þannig að ég og ólöf fórum bara upp og tókum nokkur góð lög með þeim þetta var farið að enda í hálf gerðu sing star ll´s eigandi víking og einhver annar var farinn að synja á móti okkur, stand by me og ice,ice baby og fleira rosastuð á okkur mæðgunum þar að segja mér og ólöfu :haha:
Hljómsveitin var mjög ánægð að sjá okkur perurnar þarna því að ekki voru mikið fleiri af íslendingum þarna því þeir voru að spila a´þorrablótinu hérna daginn eftir og allir að spara sig fyrir það:)

En eftir víking fórum við á muko og gjörsamlega trylltum líðinn þar, voru frekar fáir þar þannig að við áttum bara svæðið og sviðið líka, sjaldan sem ég hef skemmt mér svona vel, held meira segja að hún Jónína hafi orðið svolítið hissa á okkur á tímabili, en hún á eftir að flippa með okkur bráðum bara kynnast ollum og þá kemur þetta:)
svo þegar muko lokaði um 5 þá vorum við ekkert hættar, við ákváðum að fara á á white og þar sem að ég hef aldrei farið þangað þá fékk ég að elta hann vin okkur Jorge, og það var ekkert svo gaman þannig að við vorum þar til eitthvað um 6 þá var ferðinni heitið heim en stoppuðum á Gare að spjalla við mitzh og ll´s fengum kjúkling og svona þar og vorum komin heim að verða hálf átta8|
Heimalingurinn minn hún Sigrún var auðvitað hjá mér og við vorum sko vaknar snemma..

 

Ég,ég, Jorge og Sigrún.. Jorge dyravörðurinn á víking og Sigrún ;)

svo var ég bara að passa á laugardaginn og jónína var að passa hjá betu og bigga og ég kíkti bara þanngað með börnin og við elduðum saman og geggjað nice:)
svo kom Sigrún hingað heim til mín og við fórum að horfa á high school musical með Hildi Ingu geggjað stuð;) svo var fólkið mitt bara komið tiltörulega snemma heim eða um hálf 2 og okkur leist nú ekkert á það og fórum bara út fyrir þau:) það var geggjað fínt dróum ólöfu með okkur:)

en ég nenni ekki að blogga meira;) best að fara að taka mig til erum að fara í bíó á ettir;)
Var að skella inn myndum inná http://public.fotki.com/mariadrofn/

María Dröfn kveður geggjað sátt með helgina;)


» 10 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Klukkan
Styttist alltof hratt í að ég komi heim..!
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1673 dögum
Góðar Síður í lúx:)
Dagsetning
28. janúar 2012